Vá, tími til að setja eitthvað hér?Helga Lind og Arna Rún
Jæja.. Margt búið að gerast síðan það var síðast bloggað á þessari síðu.. En ég ætla ekki að þylja það allt upp hérna en kem með smá..Helga og Matti eru flutt í flottu íbúðina sína í Þrastarhöfða með litla kútinn sinn, Bjartmar.
Og nú standa málin þannig að ég og Sonja erum að fara að flytja suður með mömmu og pabba. 'Eg er komin með vinnu og Sonja er komin með pláss á gamla leikskólanum sínum. Gott mál. Við flytjum í Hafnarfjörð, og það núna eftir tæpar 2 vikur.. Mjög gott mál og allir eru spenntir fyrir því. Við erum öll komin með nettan leiða á að vera hér... Og svo tekur líka svo geðveikt langan tíma að fara að kíkja í heimsókn suður.. Það tekur bara alveg rúma 5 tíma, sem er nátla allt of langt og við erum líka orðin mjög þreytt á því að þurfa að keyra svo lengi.. En þetta er allt saman mjög gott og blessað og gaman.. En ég læt þetta duga núna.. Kannski kem ég með eina stutta færslu þegar ég er flutt.. Bæjó!!!!
Og hvað um þetta??Helga Lind og Arna Rún
Ég gerðist þjófur.. Ég var að skoða blogg og sá þessa færslu og mér fannst ég bara verða að stela henni og setja hana hér.. Eru hlutirnir svona?
Djamm ást
Hæ sæta, viltu ekki koma, heim með mér.
Bara að kúra, því eg er svo skotinn í þér.
Eg á risastórt rúm, það það besta sem til er.
Eg mun ekki reyna, vil bara að þú vaknir, við hliðiná mér.
Jú kannski kyssa, og aðeins strjúka,fyrst við erum nu hér.
Látt'ekki svona, þú deyrð varla kona, þótt þú verðir allsber.
Hleyptu mér niður, ég skal vera góður, og fullnægja þér.
Glenntu í sundur, þetta verður undur-, -samlegt með þér.
Og eg þarf ekki smokk, eg lét tjekka á mér, í desember.
Nú skaltu öskra, sjúga og sleikja kynfærin á mér.
Þetta er allt í lagi, enginn veit, þar sem enginn sér.
Já kyngdu, og eg lofa, að segja engum, að eg hafi riðið þér.
Æ sleppt'essu væli, þú færð ekki að leggjast, á mitt koddaver.
Og ekki hringja, eg vil ekki sjá þig hér.
Þú lítur út fyrir að hafa verið svívirt af heilum her.
Svo lyktaru eins og ígulker.
Það er ekkert hægt, að breyta því, sem orðið er.
Sættu þig við það , þú ert bara enn ein talan fyrir mér.
Eg laug öllu saman, til að komast í snertingu, við nárann á þér.
Mér er alveg sama, um þig, og hver vænting þín er.
Eg elska sjálfan mig: hér er ég, um mig, frá mér, til mín.....
Einhver veginn held ég að það séu nokkrar stelpur þarna úti sem kannast við þetta, og líka einhverjir strákar, þó svo að þeir hafi kannski oftast verið þeir sem valdi þessu.. En þetta er engin fullyrðing. Stelpur eru örugglega alveg fullfærar um að gera þetta líka.. Hugsið aðeins um þetta..
Arna..
Eirðaleysi!Helga Lind og Arna Rún
Jæja jæja.. Hvað segir fólkið þá? Það er ekki mikið að frétta héðan að norðan. Bara brjálað að gera í skólanum og svo að vinna. Lítill tími til að verja með henni Sonju minni, því miður.. Endalaus próf og verkefni, sem er skrítið því að ég er bara í framhaldsskóla. Ég hef aldrei áður á minni skólagöngu lent í því að þurfa að faraí svona mörg próf, og þetta eru bara hlutapróf.. Allavega vonandi að þetta sé bara gott, því þá er maður ekki að skíta á sig þegar jólaprófin byrja, sem er bara eftir rúman mánuð!! Svo eru bara jólin að koma.. Og það er kominn snjór í Hlíðarfjall, en ekki alveg nóg til að fara að renna sér.. Svo er ég svo ótrúlega eirðarlaus að ég er að farast! Sakna stelpnanna minna svo mikið. Ég eyði mínum tíma í að læra, læra, vinna, læra og vinna. Ömurlegt.. Held bara hreinlega að ég vilji koma aftur suður!! Ótrúlegt en satt.. En svo vil ég líka auðvitað óska turtildúfunum Helgu og Matta innilega til hamingju með nýju íbúðina sína, magnað að þau skuli vera að fara að flytja. Snilld.. En ég ætla að segja þetta gott í bili.. Adios amigos..Arna
Þrastarhöfði hera we come!!Helga Lind og Arna Rún
jæja þá er "litla" fjölskyldan búin að kaupa sér íbúð í Þrastarhöfða :) vorum að skrifa undir kaupsamninginn í gær og fáum afhennt 1. nón á afmælisdaginn minn, ekki verra að fá svona flotta afmælisgjöf!! :Þ íbúðin er 96,3 fermetrar 4. herbergja á 3, hæð með allsvakalegur útsýni yfir borgina (þurfumm ekki að fara langt á áramótunum til þess að sjá flugeldasýningar hvaðeina um landið :) en þetta er samt ein flottasta íbúð sem ég hef séð (að mínu mati náttla, hehe) Við erum svooo... spennt, sem kemur náttla engum á óvart!hér eu nokkara myndir:







nuddbaðkar :)
þetta er alveg hrikalega flott og ekki verra að hafa mömmu og pabbi í næsta húsi :)
HAH!!!???Helga Lind og Arna Rún
Jæja!! Hvað segir fólk þá? Það er nú dáldið langt síðan síðasta færsla kom. Helga er ekki eins dugleg og hún var búin að lofa að vera, hehe.. En, það er nú samt ekkert mikið að frétta, allavega ekki af mér. Fór suður með mömmu þar síðustu helgi, það var fínt. Fór út með Helgu Lind og Heru Brá, og vá hvað ég var þreytt og skemmd. Við Helga ákváðum nebla að fá okkur hvítvín með bjórnum og það skemmdi alveg fyrir mér.. Daginn eftir sko.. Djammið var með besta móti, við fórum á Óliver og vorum þar í smá tíma. Síðan ákváðum við að fara á Hressó, og þegar við Helga förum þangað, þá dönsum við af okkur rassgatið. Hehe.. ekki kannski alveg af, en við dönsum mjög mikið. Annars er það bara það sama gamla, Sonja, skólinn, vinna, sofa. Ég er að spá í koma suður næstu helgi.. Spurning? Amma er veik svo ég þarf að heimsækja hana og svo var Dísa frænka dáldið spæld yfr því að ég skyldi ekki hafa djammað með henni. Hún sagðist hafa verið búin að bíða eftir að ég kæmi suður, svo við gætum djammað saman. Spurning um að hóa bara alla saman og djamma. Þá get ég hitt alla og enginn verður sár. Anyways... Ég þarf að eins að klára að lesa, ég er að faraí próf á morgun í ensku og ég þarf að lesa 140 bls. takk fyrir takk.. En það er allt í lagi, ég er bara búin að vera hér ein heima með sonju um helgina og þar af leiðandi haft góðan frið og tíma til að lesa þegar hún hefur verið sofnuð. Ekki er sjónvarpið að trufla mann allavega. Hvað er orðið um alla dagskrá????? Ég spyr nú bara sem leikmaður, sko.. Ekki alveg nógu sátt. Allavega, ætla að drífa mig að lesa því ég er svo að fara að vinna í frábærustu vinnu EVER!!!Bjartmar Dagur 1. árs í dag :)Helga Lind og Arna Rún
Ég skulda víst nokkuð margar færslur hingað inn þannig að ég ætla að taka mig á og koma með eina netta færslu :)Litli prinsinn minn er 1. árs í dag 12/9 og finnst mér tíminn líða ALLT of hratt, ekki sammála?? við héldum uppá afmælisveisluna hans s.l sunnudag og var það alveg frábært hvað hún gekk vel, lillinn minn var eins og engill og fannst voða gaman að taka´á móti gestunum og fá pakka, hehe :)
En það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Við fórum út ég Arna, Matti og Binni og var sú ferð alveg frábær en það var samt geggjað erfitt að fara svona frá Bjartmari en við sáum það eftirá hvað við þurftum öll á þessu að halda!! Tveim dögum áður en ég fór út tók Bjartmar sitt fyrsta skref (10. mán) og var það ólýsanleg tilfinning að horfa uppá það !! ætla ekki einu sinni að reyna að lísa því... svo þegar við komum heim þá var minn farinn að labba hindrunarlaust (10 1/2 mán) nógur er tíminn til þess að labba segi ég nú en minn var víst á svo miklu iði að hann hreinlega nennti ekki að vera að skríða út um allt... ég er samt svo ótrúlega stolt af honum :) eins og flestar mömmur eru af börnumum sínum!
Ég hef bara ekkert meira að segja í bili en ég lofa að það mun ekki líða svona langur tími á milli færsla (þ.e.a.s. ef einhver les þetta ennþá )
p.s það eru komnar inn myndir á Barnaland heil 2 albúm :)
Humm..Helga Lind og Arna Rún
Ætli ég verði ekki að taka að mér skrifin þar sem að hún Helga mín er nú ekki alveg að standa sig í stykkinu.. Hehe.. Allavega.. Ekki mikið að frétta. Sonja komin aftur í leikskólann, loksins. Aðeins of langt frí, heill mánuður!! Ég er líka komin í skólann.. Fyrsti dagurinn í dag, rosa stuð. Ótrúlega stór skóli og allt of mikið af göngum! En mér finnst að Helga mætti fara að koma með eins og eitt stykki færslu hérna innVeii!!Helga Lind og Arna Rún
Dögunum fækkar óðfluga í þessa mjög svo þráðu utanlandsferð. Einungis 14 dagar. Á þessum tíma eftir 2 vikur verðum ég og Helga, Matti og Binni komin útí sól og sælu. Fljótt að líða, og spennan fer stigvaxandi. Af mér er annars lítið að frétta. Við fjölskyldan fórum vestur um helgina, fórum á Grundafjörð og ég skellti mér aðeins yfir í Ólafsvík á föstudagskvöldinu að hitta tútturnar mínar. Bara örlítið skrall, ekki svo mikið á mér og Helgu, við vorum farnar að sofa klukkan 4 eða eitthvað en það voru aðrir, sem verða ónefndir, sem sváfu bara ekki NEITT! Hehe... Á laugardeginum fór ég aftur í Grundafjörð í sæluna í tjaldvagninum. Ýkt næs að sofa svona úti. Ahhh... Svo var bara keyrt heim á sunndagskvöldinu og við vorum ekki komin norður fyrren kl. 1 um nóttina. Sjett, hvað ég var þreytt. Ég meikaði ekki einu sinni að fara í vinnuna í gær né að fara með Sonju á leikskólann. Gott að fá einn dag í frí, og aðeins að hlaða batteríin. Líka gott að geta soldið ráðið því hvort maður mætir í vinnuna eða ekkiJæja.. Ný síða..Helga Lind og Arna Rún
Góðan dag. Ég vil taka það fram að þegar þessi síða var stofnuð var það ekki gert í samráði við mig.. Smá djók.. Þetta er hin fínasta síða, og er víst í tísku að blogga á bloggar.is. Sem þýðir þá greinilega að við Helga erum meðal svala fólksins, hehe..Ég hef eitt comment, en það er samt ekki um síðuna okkar, heldur síðuna hennar Heru Brá. Það er orðið dálítið langt síðan þú bloggaðir krúsí og mér finnst að þú ættir að taka þig á. Það er nú margt sem hefur skeð og ekki skeð sem þú gætir sagt okkur frá
En héðan frá Akureyri, höfuðstað Norðurlands, er bara allt gott að frétta. Fínasta veður, þó að akkúrat þessa stundina er ekki sól, en þá er samt hlýtt og fínt. Ég hef verið spurð hvenær ég ætli að koma suður og ég bara veit það ekki, í alvöru. Ég nenni eiginlega ekki að fara suður fyrren ég fer út með krökkunum, sem b.t.w. er eftir 20 DAGA!!!!!!! Víííííí.... Það á eftir að verða helerfitt að fara frá englinum mínum í svona marga daga
En ég er að hugsa um að láta þetta bara duga í bili,
veriði blessuð og sæl.. Kær kveðja, Arna Rún.
Nýja bloggið okkar :)Helga Lind og Arna Rún
Þá er það ákveðið að við munum vera hér að blogga, þó að virknin hjá okkur er ekkert búin að vera uppá marga fiska en ég vona að það eigi eftir að breytast!! Arna farðu að taka þig á!!!!! heheh...Það er svo sem allt gott að frétta, nema það að Bjartmar Dagur greyið brenndi sig illa á hafragraut sem pabbi hans var að matreiða, náði að teygja sig í diskinn og dífa hendinni sinni ofaní
Ég ætla bara að hafa þetta stutt í dag, Arna kemur kannski með lengri færslu næst
kv Helga Lind ***Aðeins 23 dagar í Sólna***
